Project Description
Eldraunin 2023
Eldraunin verður haldin sjötta árið í röð og stendur Kraftlyftingadeild Kormáks – KDK fyrir þessum viðburði. Í ár verður keppnin haldin á sama stað og fjölskylduhátíðin við Félagsheimilið á Hvammstanga á laugardeginum. Keppt verður í ýmsum greinum í karla- og kvennaflokki, og hlýtur sterkasta fólkið titlana „Sterkasti karlinn“ og „Sterkasta konan“ á Eldi í Húnaþingi 2023. Keppnisgreinarnar verða auglýstar síðar.
Hámark 8 keppendur í hvorum flokki og 16 ára aldurstakmark.
Hægt er að skrá sig með því að senda skilaboð á Kraftlyftingadeild Kormáks á Facebook eða mæta og skrá sig á staðnum.
Viðburðinn má líka sjá á Facebook.
Staðsetning: við Félagsheimilið á Hvammstanga
Dagsetning: Laugardagur 29. júlí
Tími: 11:00 – …
Verð: Ókeypis
HVENÆR
Laugardaginn 29. júlí 2023
kl. 11:00 til …
HVAR
við Félagsheimilið á Hvammstanga
Klapparstíg, 530 Hvammstangi