Eldur í Húnaþingi2025-07-06T19:00:27+00:00

202521.-27. júlí Eldur í Húnaþingi

Eldur í Húnaþingi
21.-27. júlí 2025

HÚNAÞING VESTRA

Eldur í Húnaþingi

Eldur í Húnaþingi er árleg hátíð á Hvammstanga sem hóf göngu sína árið 2003. Hátíðin hefur tekið mörgum breytingum frá því hún var fyrst haldin. Fyrst um sinn var hátíðin unglistahátíð. Þá var hún bæði skipulögð og framkvæmd af ungi fólki í Húnaþingi vestra. Með tímanum fékk hátíðin á sig fjölskyldu- og bæjarhátíðarblæ og hefur dagskráin verið breytileg með ári hverju en hún ræðst oftar en ekki af áhugasviði stjórnenda.

Hér má svo hlusta á lag sem samið var fyrir hátíðina forðum daga. Unglistarlagið svokallaða.
Endilega smellið á „play“ og fáið stemninguna í æð.
Lag: Júlíus Róbertsson
Texti: Júlíus Róbertsson og Guðjón Valgeir Guðjónsson
Söngur: Valdimar Halldór Gunnlaugsson
Hljóðfæri: Daníel Trausti Róbertsson og Júlíus Róbertsson

Dagskrárbrot

Og svo miklu miklu meira í boði…

Glugga í bæklinginn ...->

Fyrir þau ykkar sem vilja prenta dagskrána út heima, í allri sinni litadýrð, þá er hægt að finna pdf útgáfu hér .

Hátíðarfregnir

Melló – síðasti skráningarséns!

Sko. Melló Músika fer alveg að fyllast. Sko fyrir atriði á Melló. Húsið er löngu orðið fullt svo það stefnir í bullandi stemmningu. Það er því allra síðasti séns að skrá sig núna til að ná plássi. Drífið ykkur að

VÆB slæst í hópinn

6. júlí 2025|

Stuðpinnarnir í VÆB mæta til okkar á Eld í Húnaþingi í ár. En ekki hvað? Þeir ætla að vera með

Skráningar í Vatnsnes Trail Run

Nú eru heldur betur komnar ítarupplýsingar fyrir Vatnsnes Trail Run sem er viðburður á föstudegi hátíðarinnar. Ekki nóg með það,

Yfirlýsing frá nefndinni

Forsalan sprakk í gær. Það má segja það. Þið voruð einstaklega dugleg að hafa fyrir því að mæta í röðina

Forsalan er í dag!

Í dag er dagurinn. Eina forsalan sem verður á miðum á viðburði Eldsins í ár. Við viljum ekki að þið

Styrkveitendur Elds í Húnaþingi 2025

Við erum afar þakklát fyrir þau fyrirtæki sem hafa ljáð okkur styrk sérstaklega þetta árið.
Allt hjálpar. Hér er hluti þeirra.
Takk kærlega! Þið eruð frábær!

Fastir styrktaraðilar hátíðarinnar

Go to Top