Keppt verður í prjóni á Eldi í Húnaþingi í VSP húsinu laugardaginn 26. júlí kl. 11:00. Mæting fyrir keppendur 10.30. Þrír eru saman í liði og það þarf ekki að koma með tilbúið lið. Þeim sem ekki eru í liði verður raðað í lið.
Búið verður að fitja upp og tengja í hring – allt tilbúið til að vinda sér beint í að prjóna. Hver einstaklingur prjónar í 5 mínútur og þá tekur næsti liðsfélagi við alls 15 mínútur. Það lið sem nær lengsta bútnum sigrar. Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta, annað og þriðja sæti.
Þessi dagskrárliður hefur bara farið stækkandi frá ári til árs. Þetta er skemmtilegur leikur og það væri frábært að fá fullt af áhugasömum prjónurum á öllum aldri.
Nánari upplýsingar hjá Siggu Tryggva í síma 692 8440