Ízleifur

Ízleifur, sem heitir réttu nafni Ísleifur Eldur Illugason, er tónlistarmaður sem ætlar að leyfa okkur að njóta tónlistar sinnar í Félagsheimilinu á Hvammstanga á þriðjudegi hátíðarinnar. Það eru Gærurnar sem bjóða upp á þennan viðburð.

Hann er bæði pródúsent og rappari og gaf úr fyrstu plötu sína í febrúar s.l. Hún ber nafnið „Þetta er Ízleifur“. Góðum gestum bregður fyrir á þeirri plötu, þ.á.m. rapparanum Daniil og söngkonunni GDRN.

Viðburðurinn er fyrir árganga 2006-2010.
Sjoppa verður á staðnum.

Staðsetning: Félagsheimilið á Hvammstanga, efri hæð

Dagsetning: Þriðjudagur 23. júlí

Tími: 21:00 – …

Verð: Ókeypis

HVENÆR

Þriðjudaginn 23. júlí 2024
kl. 21:00 til …

HVAR

Félagsheimilið á Hvammstanga 

Klapparstíg, 530 Hvammstangi