Skema í HR mætir með Minecraft smiðju á hátíðina Eldur í Húnaþingi fimmtudaginn 25. júlí. Á smiðjunni fá iðkendur tækifæri til þess að byggja á sérhönnuðum netþjóni Skema sem er nákvæm eftirlíking af Íslandi. Iðkendur vinna saman í hópum og koma sér saman um byggingu og staðsetningu hennar á Íslandi.

Markmið smiðjunnar eru að þjálfa teymisvinnu, skipulagningu verkefna, sköpunargáfuna og að auka áhuga á landafræði Íslands.

Aldur: 7-14 ára
Tími: kl. 10:00-13:00
Staðsetning: Grunnskóli Húnaþings vestra

Foreldrar eða aðrir aðstandendur hvattir til að fylgja þeim yngstu.
Einungis 20 pláss er í boði og er námskeiðið ókeypis. Það þarf hins vegar að skrá sig á það og það er gert hér.