Nú er komið að næsta myndaskammti og það vill svo til að hann inniheldur myndir af viðburðum sem flestir byrja á B. Bara svona til að finna ágætis samhengi.

Eins og áður hefur verið minnst á þá er myndasmiðurinn hún Eydís Ósk Indriðadóttir.

Byrjum samt á A. Nefnilega armbandagerð sem fór fram á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga.

Árni Beinteinn úr Bestu lög barnanna tryllti svo lýðinn í grunnskólanum.

Haraldur Benediktsson og Magnús Magnússon sáu um viðburðinn Blandaðir ávextir og Guðmundur Grétar útvegaði tónlistina á staðnum.

Oooog svo endum við þennan skammt á nokkrum myndum frá Eldsmótinu í borðtennis.