Krummi og krákurnar verða með tónleika/ball á föstudeginum í ár. Það má segja að þeir hefji þetta á einskonar tónleikayfirbragði og fari svo lóðbeint með þetta yfir í ball. Þeir hefja leik kl. 22:00 og aldurstakmark er 18 ár.

Krummi og krákurnar verða með tónleika/ball á föstudagsfjöri á Eldinum.
Krumma þarf vart að kynna en í fljótu bragði má nefna hljómsveitirnar Mínus, Legend og Esja en undanfarin ár hefur Krummi unnið að sinni fyrstu sólóplötu og færst nær þjóðlagatónlist og kántrý í sinni sköpun. Krákurnar eru þekktar fyrir mikla spila gleði og töffaraskap sem flytja frumsamið Americana rokk af bestu gerð.

Krákurnar skipa:
Krummi Björgvinsson- Söngur og gítar
Bjarni M. Sigurðarson – Gítar
Erik Qvick – Slagverk
Óttar Sæmundsen – Bassi
Gaukur – Munnhörpu

Miðaverð er 3.000 kr. Athugið samt að von bráðar koma upplýsingar um hátíðararmband sem hægt verður að kaupa sem gildir á flesta þá viðburði sem kosta,  meðal annars þennan.