Forsölunni lauk í gær á Melló Músík. Það er þó enn hægt að kaupa miða á þá viðburði,en á almennu verði. Viðburðirnir eru tónleikar með Dimmu í kvöld, ball með Stuðlabandinu á laugardagkvöldið og sýningin Með vindinum liggur leiðin heim á sunnudaginn.

Miðaverð á Dimmu er 6.000 kr. Aldurstakmark er 18 ár (m.v. daginn)
Miðaverð á Stuðlabandið er 6.000 kr. Aldurstakmark er 18 ár (á árinu)
Miðaverð á Með vindinum liggur leiðin heim er 2.000 kr.

Miða verður hægt að kaupa á brekkusöngnum í kvöld og á tónleikum Dimmu.
Hafið hraðar hendur, því það er t.d. bara örfáir miðar eftir á Stuðlabandið.