Ertu að vandræðast yfir kaupum á skreytingarefni eða hvað á að föndra í bílskúrnum fyrir hátíðina? Ef þú ert þar, þá líst okkur amk vel á það. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Sko. Við ætlum að halda okkur við hverfalitina og þá rótgrónu skiptinu. Þið munið.
🎶Gulur, rauður, appelsínugulur og blár 🎶
Vita ekki allir í hvaða lit þau búa?
Í ár er annars strand-/Hawaiiþema á hátíðinni. Passa skreytingarnar líka inn í það? Ennþá betra! Þemað býður upp á óteljandi mögulega viljum við meina. Hvort sem þú vilt skreyta umhverfið þitt eða bara þig sjálfa/n/t. Pálmatré, blómakransar, strandstólar, hengirúm, bambus, strandhandklæði jafnvel, ananas, kókos, Hawaii-skyrtur, sólgleraugu, stráhattar.
Leyfið sköpun að hefjast!