Forsala á viðburði hátíðarinnar fer fram þriðjudaginn 1. júlí milli kl. 20:00 og 22:00. Það margborgar sig að mæta á svæðið og fá billegri miða. Eða bara fá miða. Höldum við að það seljist upp á einhverja viðburði? Já, við höldum það.

Miðaverð verður eftirfarandi:
Melló Músika og Ljótu hálfvitarnir, 3.500 kr. (athugið að takmarkaður fjöldi miða í boði á þennan viðburð)
Föstudagstónleikarnir (Herbert Guðmunds, XXX Rottweiler og Kurtheisi), 8.000 kr. við hurð en 6.500 kr. í forsölu.
Laugardagsballið (Skítamórall), 8.000 kr. við hurð en 6.500 kr. í forsölu.

Hægt verður að kaupa helgarpassa (tónleikar og ball) á 11.000 kr.

Hámark 6 miðar á mann (per viðburð) og ekki verður hægt að taka frá miða – heldur þarf að mæta á staðinn.
18 ára aldurstakmark er á alla þessa viðburði (ath að á ballið gildir 18 ára á árinu).

Forsalan verður í aðstöðu Pílufélags Hvammstanga á neðri hæð Félagsheimilisins Hvammstanga.
Posi á staðnum og allir glaðir!