Linda okkar ætlar að leiðsegja okkur um útieldun á Eldi í Húnaþingi. Eldur. Eldun. Æ, eitthvað svo viðeigandi bara.  Þetta fer allt saman fram við útigrillið á tjaldstæðinu í Kirkjuhvammi, þar sem verður grillað brauð og annað góðgæti.

Ókeypis og tilvalið fyrir alla fjölskylduna, en börn verða að mæta í fylgd með fullorðnum.

Sjávarborg veitingastaður styrkir þennan viðburð.
Skráning er á þennan viðburð og það er að finna hér.