Þá hefjum við myndbirtingar frá hátíðinni í ár. Hún var auðvitað ekkert slor og við erum komin með myndir frá Eydísi Ósk Indriðadóttur, sem tók einmitt allar myndirnar sem við birtum hér. Við birtum hins vegar aðeins brotabrot – en góð eru þau brot!
Við byrjum á brekkusöngnum, sem var að þessu sinni við Félagsheimilið á Hvammstanga.
Því næst förum við og lítum við í Fanzone Kormáks/Hvatar við Sjávarborgarvöllinn.
Höldum svo áfram í F-inu og kíkjum á félagsvist í Félagsheimilinu á Hvammstanga.
Og endum líka í F-inu og sjáum myndir frá FIFA móti í Órion.