Selatalningin mikla verður haldin í 15. skipti sunnudaginn 27. júlí. Sjálfboðaliðar mæta á Selasetrið kl. 14:30 þar sem þeir fá fræðslu og er úthlutað talningasvæði.
Sjálfboðaliðar verða að vera mættir á sitt svæði klukkan 16:00 en þá hefst sjálf talningin.
Að lokinni talningu verða grillaðar pylsur fyrir sjálfboðaliðana og þeir fá lítinn gjafapoka sem þakklætisvott fyrir hjálpina.
Nánari upplýsingar á selasetur.is.