Eldraunin 2024

Eldraunin verður haldin sjöunda árið í röð og stendur Kraftlyftingadeild Kormáks – KDK fyrir þessum viðburði. Í ár verður keppnin haldin á sama stað og fjölskylduhátíðin við Félagsheimilið á Hvammstanga á laugardeginum. Keppt verður í ýmsum greinum í karla- og kvennaflokki, og hlýtur sterkasta fólkið titlana „Sterkasti karlinn“ og „Sterkasta konan“ á Eldi í Húnaþingi 2024.

Keppt verður í drumbalyftu, öxuldeddi, bóndagöngu og steinatökum. Ef til bráðabana kemur þá verður þar kept í útréttu.

Reglur:
– Í keppnina er 16 ára aldurstakmark.
– Hámark keppenda í hvorum flokki eru 8 keppendur.
– Leyfilegt er að hoppa inn í keppnina ÁÐUR en fyrstu grein lýkur. Eftir að önnur grein byrjar er lokað fyrir skráningar.
– Í fyrstu grein verður röð keppenda af handahófi (notað „app“ á netinu til að ákvarða). Eftir fyrstu grein ræður árangur keppenda í greininni á undan röðinni. Þ.e. að síðasta sætið í 1. grein byrjar þá næstu grein og sá sem vann 1. grein fær þá að fara síðastur í næstu grein.

Greinar:
1) Drumbalyfta
Konur með 30kg og karlar 70kg. Lyfta eins oft og hægt er frá jörðu upp fyrir haus á 60 sekúndum.
2) Öxuldedd (þykkt handfang sem snýst ekki)
Konur 80kg, karlar 120kg. Eins margar lyftur og hægt er á 60 sekúndum.
3) Bóndaganga
Konur með 50kg í hönd (samtals 100kg) og karlar 80kg í hönd (samtals 160kg). Gengin ákveðin vegalengd og hraðasti tíminn vinnur. Má missa lóðin og halda samt áfram þar til brautin klárast.
4) Steinatök
Karlar og konur lyfta fjórum steinum. Eftir að ákveða þyngdir, en konur verða líklegast á bilinu 23 til 91kg og karlar 45 til 120kg (eða 132kg).
Bráðabani:
Ef keppendur um verðlaunasæti enda jafnir á stigum þá er sætið útkljáð með útréttu. Þ.e. að halda fram lóðaplötu eins lengi og hægt er. Konur fá 10kg lóð og karlar 20kg.

Staðsetning: við Félagsheimilið á Hvammstanga

Dagsetning: Laugardagur 27. júlí

Tími: 11:30 – …

Verð: Ókeypis

HVENÆR

Laugardaginn 27. júlí 2024
kl. 11:30 til …

HVAR

við Félagsheimilið á Hvammstanga 

Klapparstíg, 530 Hvammstangi