Kokteilanámskeið

Jean ætlar að kenna okkur að blanda 2-3 drykki á kokteilanámskeiði sem verður á fimmtudegi hátíðarinnar. Námskeiðið verður frá kl. 18:00 til ca kl. 20:00 í matsalnum á neðri hæð Félagsheimilisins á Hvammstanga. Gengið er inn að sunnanverðu undir svölunum.

Námskeiðið kostar 6.000 kr. og innifalið eru drykkirnir að sjálfsögðu! Á námskeiðið komast aðeins 12-15 manns og það þarf að skrá sig með því að senda tölvupóst a ylfajean@hotmail.com.

Athugið að það er 20 ára aldurstakmark.

Staðsetning: Félagsheimilið á Hvammstanga, neðri hæð

Dagsetning: Fimmtudagur 25. júlí

Tími: 18:00 – …

Verð: 6.000 kr.

HVENÆR

Fimmtudaginn 25. júlí 2024
kl. 18:00 til …

HVAR

Félagsheimilið á Hvammstanga, neðri hæð

Klapparstíg, 530 Hvammstangi