Það er komið að því sem allir hafa beðið eftir. Dagskráin er mætt! Viðburður á viðburð ofan frá mánudagi til sunnudags. Þétt dagskrá með fjölbreyttum viðburðum og tónlistarkanónum. Ekkert slor það!

Eldur í Húnaþingi er hátíð samfélagsins – unnin fyrir og af íbúum sínum, og öll eru velkomin. Hvammstangi logar af gleði, menningu, leik og læti alla þessa sex daga í júlí. Við mælum líka með að fylgjast með vefnum og samfélagsmiðlum hátíðarinnar vegna allra uppfærða upplýsinga og nýjunga. Við uppfærum ítarlegri upplýsingar t.d. á viðburðunum sjálfum þegar þær eru tilbúnar, s.s. upplýsingar um skráningu, verð osfrv.

Gleðilegar lestrarstundir!