Nú. Er ekki kominn tími á skráningar á Melló Músika? Þið vitið. Viðburðurinn þar sem heimafólk (í allskonar skilningi) stígur á stokk og lætur ljós sitt skína í tónlist. Við höldum það. Fyrstir koma, fyrstir fá – og allt það.

Í ár er það þannig að það er eitt lag á mann, en ef staðan er þannig að það rúmast annað lag innan dagskrár – þá skoðum við það vissulega.
Skráningar sendast á baldvinfreyr98@gmail.com og munið að það er 18 ára aldurstakmark.

Við (og þegar við skrifum við, þá meinum við Baldvin) sitjum annars spennt við tölvuna að taka á móti skráningum.