Þá er enn og aftur komið að þessu. Síðasti hátíðardagurinn þetta árið er runninn upp. Hátíðin er búin að ganga alveg skuggalega vel og við erum vel þakklátir fyrir það.
Í dag er tvennt á dagskrá.
Kastalar leiktækjaleiga opnar núna kl. 12:00 og verður opin til kl. 16:00. Sííííðasti séns að skella sér í salibunu! Þú finnur Kastala við Félagsheimilið Hvammstanga.
Selatalningin mikla verður haldin í 15 skipti í dag. Sjálfboðaliðar mæta á Selasetrið kl. 14:30 þar sem þeir fá fræðslu og er úthlutað talningasvæði. Sjálfboðaliðar verða að vera mættir á sitt svæði klukkan 16:00 en þá hefst sjálf talningin. Að lokinni talningu verða grillaðar pylsur fyrir sjálfboðaliðana og þeir fá lítinn gjafapoka sem þakklætisvott fyrir hjálpina. Nánari upplýsingar á selasetur.is.