Kæru hátíðargestir!

Við viljum þakka ykkur innilega fyrir ótrúlegar viðtökur á Eldi í Húnaþingi 2024.

Við viljum þakka öllum sem lögðu hönd á plóg, við hefðum aldrei getað þetta án ykkar. Þið sem stukkuð inn í tækjamálin, sáuð um viðburði á hátíðinni, hjálpuðuð til við að loka plönum og stýra umferð, komuð fram á viðburðum, skreyttuð bæinn, færðuð ruslatunnur og skilti á milli staða, sáuð um heimasíðu og samfélagsmiðla, veittuð húsnæði endurgjaldslaust fyrir viðburði, veittuð okkur öryggi á viðburðum, styrktuð hátíðina með vörum eða fjármagni og allir hinir.

Við viljum þakka ykkur öllum fyrir að skreyta og taka þátt í glimmer gleðinni með okkur. Það var skemmtilegt að sjá svona marga glitrandi á viðburðunum. Frá litlum glimmerstjörnum í andliti til glitrandi glimmer galla, þá gerðuð þið hátíðina enn skemmtilegri og litfegurri.

Sérstakar þakkir færum við til maka og fjölskyldna okkar. Án stuðnings þeirra hefði þetta ekki verið mögulegt. Þau eiga stóran þátt í því að hátíðin tókst svona vel og við erum óendanlega þakklátar fyrir þeirra þátttöku og hjálp.

Við vonum að þið hafið notið hátíðarinnar jafn mikið og við. Að lokum langar okkur að skora á vinahópa að taka að sér skipulagningu hátíðarinnar. Okkar upplifun er að þetta þéttir hópinn og veitir dýrmæta samveru sem við förum oft á mis við í daglegu amstri.

Áfram með gleðina og glimmerið!
Kærar kveðjur,
Diskódísir