Kastalar
Leiktækjaleigan Kastalar ætlar að mæta á Eld í Húnaþingi með tæki til að trylla lýðinn. Eða þið vitið. Æsa og gleðja (ekki gleyma, gleðja) krakkana. Sennilega fullorðna líka.
Þarna verður hægt að fara í ýmis tæki sem verða kunngerð síðar. Svo verður einnig hægt að versla allskonar gúmmelaði í miðasölunni. Popp, krap, candyfloss og allskonar.
Kastalar selja miða í tækin. Það kostar 2-4 miða í hvert tæki.
Þetta verður allt saman opið á föstudegi, laugardegi og sunnudegi hátíðarinnar.
Staðsetning: við Félagsheimilið á Hvammstanga
Dagsetning: Sunnudagur 27. júlí
Tími: … – …
Verð: Sjá verðskrá
HVENÆR
Sunnudaginn 27. júlí 2025
kl. … til …
HVAR
við Félagsheimilið á Hvammstanga
Klapparstíg, 530 Hvammstangi